Innigeymsla og alþrif

Innigeymsla og alþrif fyrir bílinn

Geymdu bílinn í öruggu skjóli á meðan þú ferðast

Hjá Airpark þarftu ekki að hafa áhyggjur af því að bíllinn sé úti í kuldanum á meðan þú ferðast. Þegar þú pantar alþrif og bón færðu aðgang að fyrsta flokks geymslu fyrir bílinn í rúmgóðu, myndavélavöktuðu og upphituðu húsnæði. Við sækjum og skilum bílnum brottfararmegin við flugstöðina.

How It Works

Svona virkar þetta

1.png

Bókun

Þú bókar alþrif og geymslu og þær dagsetningar sem þú vilt að við geymum bílinn fyrir þig.

Við biðjum þig að áætla þann tíma sem þú gerir ráð fyrir að vera fyrir utan flugstöðina brottfararmegin.
Ef breytingar verða á þeim tíma er gott að senda SMS með uppfærðum tíma í númerið 772-7228. 

2.png

Brottför

Við keyrum bílinn inn í aðstöðuna okkar sem er upphituð, örugg og myndavélavöktuð.

Við dekrum við bílinn þinn á meðan þú nýtur þess að vera í fríi.

3.png

Heimkoma

Við fylgjumst með fluginu þínu. 

Við heimkomu færðu SMS sem við biðjum þig að svara með textanum „tilbúin/n og bílnúmer“ þegar þú hefur fengið töskurnar í hendurnar. Dæmi „Tilbúinn BRB-33“ 

Við hittumst brottfararmegin og við afhendum þér bílinn og lyklana.

Spurt og svarað

Helstu spurningar

Starfsmaður Airpark bíður eftir þér brottfararmegin við flugstöðina og tekur við bílnum. Við heimkomu hittumst við brottfararmegin og afhendum þér bílinn og lyklana.

Við fylgjumst með fluginu þínu! Það er því mikilvægt að vera viss um að vera með rétt flugnúmer þegar bókun er gerð. Ef breytingar verða á flugi til dæmis dagsetning eða flugnúmer getur þú sent okkur tölvupóst með uppfærðum upplýsingum á netfangið [email protected] eða haft samband í síma 772-7228. Ef aukdagur bætist við vegna fresturnar á flugi, þá er rukkað fyrir hann.

Ef rangar upplýsingar voru gerðar við bókun eða þær breytast getur þú sent uppfærðar bókunarupplýsingar á netfangið [email protected]

Ef bóka þarf með minna en sólarhrings fyrirvara biðjum við þig að hafa samband í símann okkar 772-7228.

Allir bílar eru geymdir inni í upphituðu, öruggu, eftirlitsvöktuðu húsnæði frá því að við tökum við bílnum og þar til honum er skilað.

Hvers vegna Airpark

Öryggi

Upphitað og vaktað húsnæði.

Heildarþjónusta

Þú setur saman þinn pakka.

Áreiðanleiki

Áratuga reynsla af rekstri fyrirtækja.